Jakob blandar sér í umræðuna um stóra eineltismálið: „Það er sjúkt ástand“

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson tjáir sig um stóra eineltismálið sem hefur verið áberandi í umræðunni síðustu daga. Í vikunni stigu mæðgur fram í viðtali í kvöldfréttum RÚV og sögðu frá grófu einelti sem stúlkan hefur orðið fyrir, en hún er einungis tólf ára gömul.

Einhverjum þótti óviðeigandi að fjölmiðlar skyldu fjalla um málið af þessum krafti, hvað þá taka viðtal við hana. Jakob Bjarnar er á allt öðru máli, en hann virðist ekki sáttur með að fjölmiðlar hafi verið gerðir að blórabögglum í málinu.

„Mikið kemur það mér á óvart að eineltismálið í Hafnarfirði sé farið að snúast um fjölmiðla, að þeir hafi sagt of mikið — eða ekki.“ skrifar hann á Facebook-síðu sinni.

Færsla hans hefur vakið mikla athygli og hafa margir svarað honum fullum hálsi. Þ´vi heufur hann skýrt skoðanir sínar á málinu í lengra máli.

„Ábyrgð fjölmiðla snýst fyrst og síðast um að reyna að upplýsa almenning. En enn og aftur erum við stödd í miðju fári sem byggir á því að fjölmiðlar hafi sagt of mikið, tekið viðtal við mægðurnar sem voru sannarlega desperat; en krafan er fyrst og síðast sú að fjölmiðlar passi sig á því að segja ekki of mikið. Ekki af því að gagnrýnendurnir sjálfir treysti sér ekki fyrir upplýsingunum, heldur það eru einhverjir aðrir sem enginn veit hver er sem að mati þeirra kunna ekki með upplýsingarnar að fara.“ skrifar Jakob.

„Það er inntak "gagnrýninnar" á fjölmiðla; að þeir eigi að vera einhver súper nanny i þessu samfélagi og hafa vit fyrir vitleysingunum. (Ég kalla þessa öfugsnúnu gæsku mannfyrirlitningu.)“ bætir hann við og heldur áfram:

„Halda sumum upplýsingum frá. Þetta var algerlega fyrirséð því fjölmiðlar hafa þjónað hér dyggilega sem blórabögglar fyrir þjóð sem er helsýkt af meðvirkni. Og sú staðreynd að þessar upplýsingar höfðu þegar birst opinberlega, á samfélagsmiðlum, virðist ekki ætla að breyta neinu þar um. Þessi þjóð vill ekki sleppa takinu á þessum frábæra blóraböggli.“

Þá segir hann jafnframt:

„Allar þessar upplýsingar lágu fyrir opinberlega. Móðirin hafði birt þetta og er þá eitthvað annað í stöðunni fyrir fjölmiðla en að ræða við hana? Málið er að fólk vill geta varpað ábyrgð á einhverju sem það ræður illa við sjálft yfir á fjölmiðla. Það er sjúkt ástand.“