Jakob Bjarnar veður í Twitter-samfélagið: „Þetta er hol­ræsi inter­netsins“

Stjörnu­blaða­maðurinn, Jakob Bjarnar, er allt annað en sáttur með aktivistana a á sam­fé­lags­miðlinum Twitter. Hann lét skoðun sína í ljós í Bítinu á Bylgjunnií morgun.

„Svo kom nú upp ein­kenni­legt mál. Sem fór nú kannski ekki mjög hátt. Við höfum farið yfir það áður. Það er með þennan Twitter-skríl,“ sagði Jakob Bjarnar í löngu við­tali á Bylgjunni.

„Twitter er náttúru­lega hol­ræsi Inter­netsins. Þar eru menn í enda­lausri herpings­legri brandara­keppni og dyggðar­skreytingu,“ bætti hann við.

„Þetta er ekki eins gott fólk og það vill láta það líta út fyrir að vera því en þarna ríkir mikil ref­si­gleði og læti.“

Máli sínu til stuðnings bendir hann á að Alexandra Briem, for­seti borgar­stjórnar, lét tíst um ís­lensku kvik­myndina Leyni­lögguna hverfa eftir að á­hrifa­valdurinn og hlað­varps­stjarnan Edda Falak spurði hvort inn­leggið væri brandari.

For­setinn var mjög á­nægð með myndina ef marka má tístið.

„Hún er varla búin að sleppa orðinu og þá kemur Edda Falak. Sem fer nú fyrir aktiv­istunum þarna á twitter og spyr bara mjög merkinga­þrungið: „Er þetta brandari“ og þá líður ekki á löngu og þá er Alexandra for­seti borgar­stjórnar búinn að taka tweetið út,“ segir Jakob.

Spurður um af hverju hún mátti ekki tísta þessu?

„Ég hef haldið því fram að allar stofnanir sam­fé­lagsins séu meira og minna á hnjánum gagn­vart þessu,“ segir Jakob Bjarnar.

Þátta­stjórn­endur spyrja þá Jakob aftur hvað hafi ollið því að hún hafi tekið tístið út og segir Jakob það hafi verið vegna þess að hún hafi verið hræddu um að lenda í hakka­vélinni.

„Það tengist þá því að í myndinni séu ein­hverjir menn sem hafa verið sakaðir um að hafa beitt kyn­ferðis­legu of­beldi,“ segir Jakob Bjarnar og segir að það sé væntan­lega Egill Einars­son „Leik­fimi­kennari“ úr Kópa­vogi. „Hans mál sem ég hélt að væri bara búið að af­greiða. “