Jakob Bjarnar um Vöndu: „Treystir hún sér þá í þetta? Hvað er málið?“

Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, spyr hvort Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ treysti sér til að halda áfram í ljósi þess að henni finnst fjölmiðlar vera erfiðari en hún hafði gert sér grein fyrir. Hann fór yfir málefni vikunnar íBítinu á Bylgjunni í morgun.

Þar var meðal annars rætt um Vöndu sem sagði í viðtali í Morgunútvarpinu á Rás 2 í gær að verið buguð og sorgmædd í hjarta eftir að stjórn KSÍ tók þá ákvörðun um að virkja uppsagnarákvæði í samningi Eiðs Smára Guðjohnsen, fyrrum aðstoðarlandsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu.

„Ég ætla vera hreinskilinn, ég var eiginlega buguð eftir þetta, fannst þetta hrikalega leiðinlegt og var sorgmædd í hjartanu að við hefðum þurft að komast að þessari sameiginlegu niðurstöðu. Ég hefði bara farið að gráta, ég var bara þar. Ég bað Ómar Smárason um að fara í viðtölin fyrir mig. Ég þurfti bara aðeins að ná mér. Ég gat eiginlega ekkert sofið þessa nótt og leið ömurlega," sagði Vanda en Ómar Smárason er deildarstjóri samskiptadeildar sambandsins.

Jakob Bjarnar ræddi þetta í morgun, hann sagði:

„Mér sýnist birnan ekki ætla að batna mikið. Loksins skreið hún út úr fylgsni sínu, hún Vanda Sigurgeirs var í Morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hún sagði einfaldlega ekki hafa treyst sér. Víkur þá sögunni að þessari þjóðhetju okkar miklu, Eiður Smári Guðjohnsen, KSÍ hefur ekkert viljað útskýra það hvers vegna þessum samningi við rift. Þetta er ekki einkamál KSÍ, þetta er landsliðið. Hún upplýsti þar að hún hefði ekki treyst sér til þess að tjá sig um þetta því hún hefði bara farið að gráta.“

Jakob andvarpaði. „Snúum aðeins upp á þetta, af hverju er það orðin einhver skömm? Þó hún hefði fellt tár, af hverju er það einhver skömm? Af hverju leggur hún það upp?“

Hann setur svo fleiri spurningamerki:

„Hún ætlar að bjóða sig fram í febrúar á næsta ári þegar kosinn verður nýr formaður. Hún sagði það jafnframt í þessu viðtali að fjölmiðlar væru miklu miklu erfiðari en hún hefði getað ímyndað sér. Treystir hún sér þá í þetta? Hvað er málið?,“ spyr hann.

„Bæði KSÍ og aðrir sem gegna störfum sem eru að einhverju leyti opinber ber bara að svara fjölmiðlum. Með eðlilegum fyrirvörum.“