Endurnýjaðar stjórnarmyndunarviðræður ríkisstjórnarflokkanna sem nú eru í gangi eru ekkert nema leikrit að sögn Jakobs Bjarnars Grétarssonar. Jakob var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann greindi frá skoðunum sínum á hinum ýmsu málefnum en tók stjórnarmyndunina sérstaklega fyrir.
Jakob segir að til þess að leysa rembihnútinn sem myndast hefur í Norðvesturkjördæmi þurfi að kjósa aftur á öllu landinu: „Það liggur fyrir að þetta var talningaklúður, þar með er trúverðugleiki kosninganna er í uppnámi,“ segir Jakob.
Ef það verði ekki gert segir Jakob að það þýði að núverandi þingmenn séu umboðslausir.
Honum lýst ekkert á að kjósa eingöngu í Norðvesturkjördæmi: „Það gengur heldur ekki að kjósendur í norðvestur kjósi aftur með allt aðrar forsendur heldur en aðrir kjósendur í landinu. Það er engin önnur leið út úr þessu. Það er ekki eins og mig langi svona rosalega mikið til þess að fara í kosningar,“ segir Jakob.
Hann hélt áfram: „Nú eru þau Katrín, Bjarni og Sigurður Ingi búin að vera í hvað, sex vikur að drekka kaffi og hafa það huggulegt. Hvaða leikrit er þetta? Þetta fólk var saman í ríkisstjórn í fjögur ár. Þau gengu til kosninga í einhverskonar kosningabandalagi. Hversu langan tíma getur það tekið að skrúfa saman eins og einn stjórnarsáttmála og skipa þessa ríkisstjórn,“ segir Jakob.
Aðspurður hvers vegna hann haldi að standi á því að viðræðurnar taki svo langan tíma líkt og raun ber vitni stendur ekki á svörum hjá Jakobi: „Ég held að þetta sé leikrit. Það er mín kenning. Við verðum að átta okkur á því að þetta er úrkynjuð stjórnarsamsetning, að vera með VG og Sjálfstæðisflokk saman í ríkisstjórn. Þetta eru flokkar sem skilgreina sig sitthvorumegin enda hins flokkspólitíska áss,“ segir Jakob.
Hann segir Sjálfstæðismenn tækifærissinna: „Þetta er sérstaklega erfitt fyrir VG og stuðningsmenn þeirra því ég held að þeir séu ekki jafn tækifærissinnaðir og Sjálfstæðismenn. Þeir vilja bara vera við völd no matter what. Þá skiptir engu máli í sjálfu sér ef þeir fá að einkavinavæða allt draslið að Katrín fái að húrra upp enn einni jafnréttisstofunni, kannski núna fyrir Austan. Hvernig væri það?“
Hann ber þremenningunum ekki góða söguna: „Þetta lýsir þrotuðu kerfi. Síðast höfðu þau það fyrir sér að þau neyddust til að fara saman til að gæta að einhverjum stöðugleika. Ég meina, hvað er það? Eru þau ekki búin að sitja hérna í fjögur ár? Er ekki algjör Covid stöðugleiki ríkjandi hér á Íslandi?“ segir Jakob.
Hann segir skammarlegt að þingsetning hafi ekki enn farið fram, svo löngu eftir kosningar: „Það er ekki búið að setja þingið enn þá pælið í því. Nú erum við með ofalda þingmenn á ofurlaunum og þeir bara sitja heima og bora í nefið. Út í hvað erum við komin? Þetta er náttúrulega bara alveg skelfilegt,“ segir Jakob af sinni alþekktu yfirvegun.