Jakob Bjarnar talar hreint út: „Hverjum dettur svona lagað í hug?“

Fresturinn til að nota fyrri ferðagjöf stjórnvalda rann út á mánudag og er óhætt að segja að Íslendingar hafi verið duglegir að nota hana áður en fresturinn rann út.

Tæplega níu þúsund manns notuðu ferðagjöfina á mánudag og rann stór hluti hennar til skyndibitafyrirtækja eins og komið hefur fram. Sitt sýnist hverjum um þetta og eru margir þeirrar skoðunar að það sé hreinlega brjálæðislegt að gefa fólki 5.000 krónur sem svo er hægt að nýta nánast á hvern þann hátt sem fólk langar.

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson er ekki þekktur fyrir að liggja á skoðunum sínum og lagði hann orð í belg um málið á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi.

„Ég ætla bara að segja það hreint út: Hvaða geggjun er að ausa úr sjóðum almennings milljarði króna, dreifa 5 þúsara á haus, kalla það ferðagjöf svo vel haldnir Íslendingar geti farið og keypt sér Hlölla, Dómínós eða KFC. Hverjum dettur svona lagað í hug?“

Fjölmargir hafa skrifað athugasemdir við færsluna og taka margir undir. „Ég skildi þetta þannig að þessi ferðaávísun, sem við þjóðin greiðum síðar, ætti að vera til að aðstoða staði og fyrirtæki á landsbyggðinni þegar landið lokaðist,“ segir fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir, eða Sirrý.

Kollegi hennar og Jakobs, Egill Helgason, segist hafa nýtt sína til að panta mat frá Austur-Indíafélaginu. Þá segist einn hafa látið sína ferðagjöf liggja svo peningurinn muni nýtast þegar kemur að endurreisninni eftir þennan skelfilega faraldur.

Fjölmargir lögðu svo orð í belg um ferðagjöfina á Twitter og ljóst að margir hafa skoðun á málinu.