Jakob Bjarnar spyr hvort fólki finnist í lagi að Viaplay geri þetta: „Sér fólk ekki hvað þetta er subbulegt?“

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson er ekki sáttur með streymisveituna Viaplay. Í færslu sem birtist á Facebook-síðu hans bendir hann á að sænska streymisveitan hafi haft umsjón með að sýna leiki þjóðardeildarinnar, og til þess hafi hún leigt búnað af RÚV.

„Viaplay er komið með þjóðardeildina og þar með landsleiki ÍSL. Og afgreiða útsendinguna með því einfaldlega að leigja af RÚV, sem er í allskyns samkeppnistengdum monkíbisness, landsleikja setupið sem ríkið annars notar.“

Jakob virðist allt annað en sáttur með að Viaplay geti nýtt sér ríkisstyrkta innviði og spyr hvort fólki finnist það ekki subbulegt.

„Þannig að þessi erlenda múltískæsveita Viaplay labbar hér inn á markað og hagnýtir sér innviði sem eru ríkisstyrktir til að jarða samkeppnina. Ég veit það ekki, sér fólk ekki hvað þetta er subbulegt eða er öllum bara drull?“

Síðan ákvað Jakob að útkýra afstöðu sína betur, en hann sagði þetta ekki varða umræðu um fótbolta:

„Bara til að girða fyrir frekari misskilning snýst þetta upplegg ekki um fótbolta, hvað þá umfjöllun um fótbolta (sic) heldur um prinsipp í samkeppni. Það að RUV, annað hvort meðvitað eða ómeðvitað, (og ég veit ekki hvort er verra) sé svona fullkomlega skeytingarlaust um stöðu sína á viðkvæmum samkeppnismarkaði. Þannig hlýtur stofnunin að vera að grafa undan tilverurétti sínum. Sem ég er ekkert viss um að sé gott. Eða, öllu heldur ætti að vera að grafa undan, í upplýstu samfélagi þar sem prinsipp skipta einhverju máli.“

Fleiri tjáðu sig um málið í ummælakerfi Jakobs. Til að mynda sagði Bubbi Morthens: „Þetta er ömurð“ - Þá lagði sagnfræðingurinn Stefán Pálsson orð í belg, en hann útkýrði hvernig stæði á þessari stefnu RÚV.

„Hér sem í öðrum tilvikum er gott að rifja upp söguna og bakgrunninn. Til skamms tíma var harðbannað að lána búnað eða aðstöðu RÚV til utanaðkomandi aðila. Þessu var töluvert bölvað af mönnum í geiranum sem vissu af búnaði þar sem hefði komið sér vel en við því var bann nema mögulega á laun og í gegnum klíku.

Vorið 2017 var ný stefna RÚV samþykkt. Þá var Kristján Þór orðinn menntamálaráðherra en ég reikna þó með að Illugi Gunnarsson hafi komið verkinu að stað. Eitt af því sem tiltekið var í stefnunni var að gera skyldi sjónvarpsstúdíó, hljóðver og aðra tækniaðstöðu aðgengilega fyrir sjálfstæða framleiðendur sjónvarps og kvikmyndaefnis. Yfirlýst markmið með þessu var að stuðla að og viðhalda fjölbreyttri fjölmiðlun - frekar en að þetta væri kynnt sem sérstök tekjuöflunarleið fyrir stofnunina. Þetta var amk tilgangurinn þótt ég þykist ekki geta dæmt um hvort hann hafi gengið eftir.“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason skýrði málið líka betur:

„Viaplay hefur leigt stúdíó í Efstaleiti annað slagið í vetur - aðallega undir útsendingar frá Meistaradeildinni og nú þessa blessuðu Þjóðadeild. Virðist ekki vera mikill áhugi á henni - alls staðar tómir vellir. Þeir settu upp leikmynd sem okkur sem vinnum í stúdíóinu finnst furðu stór og mikil. En þetta er náttúrlega alþjóðlegt fyrirtæki sem ætlar sér stóra hluti.“