Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, segir að hundrað milljón króna fjárveiting til N4 frá fjárlaganefnd hefur ekkert með styrkveitingu til fjölmiðla að gera.
„Það gætir einhvers skelfilegs misskilning og fáfræði í öllu þessu tali um landsbyggðarmiðla. Þar er talað af djúpri sannfæringu um skort á fréttum úr fásinninu?! Ég vona að fólk átti sig á því að þetta er oxymoron? Allt þetta tal um að efla þurfi miðla á landsbyggðinni snýst um (brotna?) sjálfsmynd landsbyggðarfólks og ákall um auglýsingu og hrós,“ skrifar Jakob.
„Umfjöllun þar sem búið er að kippa út möguleikanum á gagnrýninni nálgun; trúnaði við lesendur/hlustendur/áhorfendur. Enda í mörgum tilfellum um keypta umfjöllun að ræða. Það hefur bara óvart ekkert með fjölmiðla og/eða blaðamennsku að gera. Og ætti þar með ekki að koma úthlutun úr sjóði sem ætlað er að styrkja hlutlægan fréttaflutning á Íslandi hætis hót við,“ skrifar Jakob enn fremur.
Hann deilir frétt Vísis máli sínu til stuðnings.