„Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri á Norðurlandi eystra talar helst ekki við fjölmiðla. Henni er meinilla við það. Um það eru mörg dæmi. En hún virðist samkvæmt þessu sitja löngum stundum á kjaftafundum með bloggaranum Páli Vilhjálmssyni sem svo leggur út af þeim upplýsingum sem Páley lætur honum í té að hætti hússins,“ skrifar Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður á Vísi, inn í fjölmiðlanördar Facebook hópinn.
„Að Þórður Snær hafi tekið það skýrt fram í yfirheyrslu að hann væri verðlaunablaðamaður?! Ef þetta er ekki svo að Páll sé í beinu talsambandi við lögregluna á Norðurlandi eystra, sem hlýtur að vera hin eðlilega ályktun að draga þá er kominn tími á að mennirnir í hvítu sloppunum heimsæki framhaldsskólakennarann og færi hann í treyju með löngum ermum.
Upplýsingagjöf lögreglunnar hefur í gegnum tíðina verið með ósköpum, því miður, með fáeinum undantekningum,“ bætir hann við.
Páll Vilhjálmsson kennari og bloggarigreindi frá þvíí dag að Þórður Snær hafi sagt í yfirheyrslum sínum að hann væri verðlaunablaðamaður.
„Og ekki batnaði Birni þegar núverandi útvarpsstjóri ákvað að stofna sérstaka ritstjórn innan vébanda hennar sem færi í það að segja fréttir af sér sjálfri á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum. Feitt framlag til upplýsingaóreiðunnar. En þetta er nýr kafli í þeirri hörmungarsögu allri og … pardon my french: Verulega lúnaður,“ skrifar Jakob Bjarnar.