Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson og rithöfundurinn Þórarinn Leifsson lentu i hartrimmu rifrildi undir færslu Þórarins í dag.
Þórarinn ákvað þar að birta mynd af málverki af sálfræðingnum Jordan Peterson og skrifa: „Fréttamynd árssins. Í allri umræðunni um Jordan Peterson fékk þessi atburður ansi litla athygli. Þetta er svo fallegt! Hópur karlmanna dáist að rassi sem er ekki til staðar, þeir stara lotningafullir niður í tómið undir málverkinu. Maður bíður spentur eftir því að barn í salnum æpi upphátt: „Já, en það er enginn rass þarna!“ Hvað þetta merkir svo? Ég veit það ekki.“
Jakob Bjarnar finnst rithöfundurinn skjóta heldur lágt þarna og svara honum um hæl: „ Þú værir áhugaverðari listamaður ef þú værir ekki bara að hnoðast í þeim sem rétttrúnaðarníðingarnir á Twitter eru búnir að gefa út veiðileyfi á,“ skrifar Jaokb.
Þessi ummæli fóru eitthvað öfugt ofan í Þórarinn sem ákveður að kalla Jakob aumingja.
„æ fokk ju aumingi. Aldrei gert neitt nema runka establishmentinu a launum,“ skrifar Þórarinn sem Jakob svarar kaldhæðnislega með „einmitt.“
Þórarinn lét ekki staðar numið og vitnar í bókadóm Jakobs um eigin skrif.
„Og óhjákvæmilega vaknar sú spurning hvort höfundur noti það sem afsökun fyrir því að flétta súrrealískan óhugnað í verk sín, að boðskapurinn megi heita „góður“?“
– Stjörnublaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar þetta um höfundarverk Þórarins Leifssonar í Fréttablaðinu nóvember 18 nóvember 2014. Í ritdómi um leikssýningu sem var að vísu ekkert snilldarverk. Þess má geta að Þórarinn var búinn að leggja Jakob og fleiri „andfeminista“ í einelti í einhvern tíma á Facebook árin á undan. Stjörnublaðamaður svo sannarlega. Af hverju fær Jakob ekki Fálkaorðuna? Sjáumst í næstu bók, auli!“ skrifar Þórarinn.
„Meðan þú ert einvörðungu í því að koma þér í mjúkinn hjá rétttrúnaðarliðinu og dyggðaskreytingakújónunum, þá ertu og verður óspennandi höfundur. Taktu þig taki elsku vinur því það er einhver talent þarna. Grátlegt að sjá hann fara í hundana á altari þessara ómerkilegheita. Step up your game!“ Svara þá Jakob Bjarnar áður en Þórarinn segir honum vinsamlegast að hypja sig.
„Vertu uti vinur. Sleiktu rassgatið a einari kara etc. Eg vil ekki sja þig,“ skrifar Þórarinn að lokum.