Jakob Bjarnar: „Mikið er þetta dapurlegt“ – Bubbi: „Menningarlegur fasismi“

„Mikið er þetta dapurlegt. Um er að ræða skelfilegar sögufalsanir; vegsömun flatneskju og hinnar bókstaflegu merkingar. Makalaust að sjá þetta vaða uppi,“ segir Jakob Bjarnar Grétarsson, bókmenntafræðingur og blaðamaður, á Facebook-síðu sinni.

Þar gerir hann umfjöllun RÚV um helgina að umtalsefni en greint var frá því að móðgandi orðalag yrði fjarlægt úr barnabókum breska rithöfundarins Rolalds Dahl.

Í fréttinni kom fram að barnabókaútgafandinn Puffin hefði ráðið næmnishöfunda til að endurskrifa nokkra texta rithöfundarins og voru birt nokkur dæmi um breytingarnar:

„Augustus Gloop í Kalla og súkkulaðiverksmiðjunni er ekki lengur lýst sem feitum, heldur risavöxnum. Herra Twit í sögunni um Twit-hjónin er ekki lengur lýst sem ljótum og dýrslegum, heldur einungis dýrslegum. Í Jakob og risastóru ferskjunni hefur orðalag verið fjarlægt þar sem persónu er lýst sem hryllilega feitri. Orðinu kvendýr hefur verið skipt út fyrir konu í sögunni um Matildu og svo mætti lengi telja,“ sagði í frétt RÚV.

Jakob Bjarnar segir að þetta sé varhugaverð þróun.

„Miðað við þetta liggur fyrir að þeir sem velkjast í listum verða ekki síðasta vígið sem fellur í þessu skelfilega menningarstríði nema síður sé og er það þyngra en tárum taki. Því ef menningarstofnanir á borð við útgáfur telja það ekki sitt hlutverk að standa vörð um frelsi, túlkunarrými, blæbrigði, margræðni, gagnrýna hugsun þá eru þær beinlínis orðnar að helstu andstæðingum hugtaksins list.“

Fjölmargir lögðu orð í bel við færslu Jakobs Bjarnar og tók tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens til dæmis heilshugar undir með honum.

„Þetta er einskonar menningarlegur fasismi. Tryllt galið,“ sagði Bubbi. Jakob Bjarnar velti fyrir sér hvernig texti Bubba við lagið Aldrei fór ég suður gæti litið út ef samskonar breytingar yrðu gerðar á textum hans.

„Ég er smeykur um að þú verðir að vaða í það að breyta nokkrum hendingum í þínu höfundarverki, vinur minn, áður en Rithöfundasambandið fer í það fyrir þig. "Sæta dúkkan hans Bensa í Gröf" verður orðin "Femínistinn hennar Binnu í Gröf..." áður en þú veist af.“