Jakob Bjarnar miður sín eftir að hafa farið með rangt mál í Bítinu: „Vona að þeir geti fundið það í hjarta sínu að fyrir­gefa mér heimskuna“

Jakob Bjarnar Grétars­son, blaða­maður á Vísi, biðst af­sökunar á því að hafa farið með rangt mál í Bítinu í morgun er hann var að tala um fræga kinn­hestinn í Njálu.

„Af­sökunar­beiðni. Í svefn­rofunum í morgun, í hinu viku­lega radíó­rausi í Bítinu á fimmtu­dags­morgnum, tókst mér á ein­hvern undur­furðu­legan hátt að snúa því á haus í öllu gasprinu að Hall­gerður hafi löðrungað Gunnar, í einum frægasta og af­drifa­ríkasta löðrungi Ís­lands­sögunnar — sem forn­bók­menntirnar auð­vitað eru,“ skrifar Jakob á facebook.

„Við trúum þessum sem nýju neti og getum ekki annað. En auð­vitað var það Gunnar sem löðrungaði Hall­gerði lang­brók í votta viður­vist en ekki öfugt. Hall­gerður neitaði svo Gunnari um lokk úr hári sínu þegar boga­strengur hann brast á ögur­stundu. „Þá skal eg nú, muna þér kinn­hestinn og hirði eg aldrei hvort þú verð þig lengur eða skemur,“ sagði Hall­gerður og því fór nú sem fór. Ég vil þakka þeim sem þegar hafa bent mér á þetta mis­hermi og vona að þeir geti fundið það í hjarta sínu að fyrir­gefa mér heimskuna,“ skrifar hann enn fremur.