Mál dagsins í dag er án efa „læk“ sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, setti við færslu Loga Bergmanns Eiðssonar á Facebook í gærkvöldi.
Áslaug Arna sagði í skriflegu svari til fjölmiðla að á erfiðum tímum reyni hún að sýna þeim sem standa henni nærri samkennd. Það mætti gera með öðrum hætti en hún gerði. Hins vegar felist engin afstaða eða vantrú á frásagnir þolenda.
Þá varð einnig hávær umræða innan Félags kvenna í atvinnulífinu og dró Sigríður Hrund Pétursdóttir, formaður félagsins, læk sitt til baka eftir gagnrýni.
Jakob Bjarnar Grétarsson, blaðamaður Vísis, segir „jahérna“ á Facebook:
„Sko, burtséð frá öllu og öllu (ég til að mynda frábið mér algjörlega það að vera vændur um gerendameðvirkni) þá er það algjörlega á hreinu að það gengur ekki að gefa sér einhverjar fyrirframgefnar forsendur og túlka læk á samfélagsmiðlum (af öllum fyrirbærum) eftir eigin höfði, út frá einhverjum vafasömum fræðum og að þau læk séu að gefnum þeim forsendum til marks um eitthvað alveg tiltekið. Og sú túlkun sé óhrekjanleg staðreynd og út frá henni skuli umræðan miðast. En við virðumst vera komin þangað,“ segir hann.
Þeir sem hafa sett læk við færslu Loga hafa margir fengið yfir sig gusu á samfélagsmiðlum og ásakanir um að standa með gerendum gegn þolendum, Jakob kemur þeim til varnar:
„Merking læks getur vitaskuld og auðvitað verið með ýmsu og margvíslegu móti. Að afneita því heita dólgafræði. Og er það ekki einmitt dólgsháttur sem við viljum berjast gegn?
Ég er sannast sagna afar undrandi á því að orðsins menn, þeir sem gefa sig út fyrir að vilja standa vörð um tungumálið, tákn og merkingarbærni þeirra, skuli ekki voga sér að stíga fram og benda á þessa einföldu staðreynd. Því þetta sem ég er hér að segja er staðreynd ekki skoðun, vel að merkja.“