Jakob Bjarnar, Illugi Jökuls og Bubbi takast á um há­marks­hraða: „Þetta rugl veitir löggunni skot­leyfi á borgarana“

Jakob Bjarnar Grétars­son, blaða­maður á Vísis er allt annað en sáttur með á­kvörðun borgarinnar um að lækka há­marks­hraða í Reykjavík. Til­laga að há­marks­hraða­á­ætlun Reykja­víkur var sam­þykkt í skipu­lags- og sam­göngu­ráði borgarinnar í gær og vísað til borgar­ráðs. Sam­kvæmt Reykja­víkur­borg er mark­mið á­ætlunarinnar sé að stuðla að bættu um­ferðar­öryggi og að nauð­syn­legt sé að draga úr um­ferðar­hraða til að ná því. Ekki sé rétt­lætan­legt að fórna heilsu veg­far­enda fyrir minni tafir

Gert er ráð fyrir því að há­marks­hraði verði 10km/klst á al­mennum vist­götum, 40km/klst á öðrum safn­götum og húsa­götum í iðnaðar­hverfum og 50km/klst á stofn­götum og borgar­götum. Jakob segir á face­book að ekki einu sinni amma á sunnu­dags­rúnti muni fylgja þessu.

„Engin til­vik eru um um­ferðar­ó­happ innan borgar­marka sem bein­línis má rekja má til of mikils há­marks­hraða. Þar kemur eitt­hvað annað til. Sá sem veldur tjóni með ofsa­akstri er þegar búinn að brjóta lög um há­marks­hraða,“ skrifar Jakob Bjarnar.

„Ef löggan grípur ein­hvern á 160 km hraða þá er það falskt öryggi að halda að lækkun há­marks­hraða úr 60 í 40 breyti ein­hverju þar um. Þetta rugl veitir löggunni skot­leyfi á borgarana því ekki einu sinni amma á sunnu­dags­rúnti fer um auðar stofn­brautir á 40. Og þannig elur þetta á ó­virðingu fyrir þeim lögum og reglum sem eiga fullan rétt á sér. Það er það versta og nokkuð sem for­ræði­hyggju­dólgarnir leiða aldrei huga að, með sínu kær­leik­sof­beldi,“ skrifar Jakob enn fremur en færslan hefur vakið gríðar­lega at­hygli.

Um 150 um­mæli eru undir færslunni frá hinum ýmsu Ís­lendingum. Illugi Jökuls­son spyr þar Jakob hvort lækkunin snúist ekki meira um svif­ryk frekar en um­ferðar­ó­höpp og hafa um tuttugu manns svarað honum m.a. Bubbi Morthens en hann segir við Illuga að svif­rykið sé í boði borgarinnar þar sem um er að ræða ó­nýtt mal­bik sem er illa þrifið.

Engin tilvik eru um umferðaróhapp innan borgarmarka sem beinlínis má rekja má til of mikils hámarkshraða. Þar kemur...

Posted by Jakob Bjarnar Gretarsson on Miðvikudagur, 14. apríl 2021