Jakob Bjarnar hjólar í gagn­rýn­endur Bubba: „Vá hvað þetta er níð­angurs­legt“

Net­verjar hafa verið æfir út i tón­listar­manninn Bubba Morthens eftir að lög­maður hans Einar Þór Sverris­son og Sölvi Blön­dal, fram­kvæmda­stjóri Öldu Music, funduðu með Stefáni Ei­ríks­syni út­varps­stjóra og kröfðust þess að því yrði svarað hvers vegna ný­legt lag sem Bubbi gaf út með tón­listar­manninum Auði hafi varla heyrst á Rás 2.

Sam­kvæmt heimildum Vísis vildu Einar og Sölvi fá svör við því hvort á­stæðuna fyrir þessari spilun mætti rekja Atla Más Steinars­sonar dag­skrár­gerðar­manns á Ríkis­út­varpinu en Atli hefur opin­ber­lega gagn­rýnt Bubba fyrir að vinna með Auði.

Matthías Már Magnús­son, dag­skrár­stjóri Rásar 2, hafnaði því þó að Atli Már bæri á­byrgð á dræmri spilun landsins á stöðinni. Þetta kemur fram á DV.is.

Jakob Bjarnar Grétars­son, frétta­maður á Vísi og sá sem skrifaði upp­runa­legu greinina um málið, hefur nú tjáð sig um þetta fjaðra­fok sem or­sakaðist vegna fréttarinnar. Í færslu sem Jakob birtir á Face­book-síðu sinni í dag gagn­rýnir hann þau sem hjóluðu í Bubba í gær.

„Bubbi Morthens og Auður gera lag saman. Lagið nýtur gríðar­legra mælan­legra vin­sælda nema það heyrist vart á ríkis­rekinni út­varps­rás sem gefur sig meðal annars út fyrir að segja lands­mönnum af því hvað klukkan slær í ný­gildri tón­list. Og á þeirri stöð starfar maður sem sakar Bubba um ger­enda­með­virkni af mikilli hörku opin­ber­lega vegna út­gáfunnar. Bubbi spyr hvað sé í gangi, hvort verið geti að þetta tvennt tengist, og telur sig hafa góðar og gildar á­stæður fyrir því. Og það eina sem menn vilja taka út úr þessu er að Bubbi Morthens (sjálfur) sé að væla vegna þess að hann fái ekki spilun?! Af­sakið en vá hvað þetta er eitt­hvað níð­angurs­legt og/eða lé­legt,“ skrifar Jakob.