Jakob Bjarnar furðar sig á nýrri klippingu Egils Helgasonar: „Meiri forréttindamelurinn“

Líkt og flestum ætti nú að vera kunnugt er í gildi tíu manna samkomubann á landinu öllu og lokað hefur verið fyrir þjónustu sem krefst mikillar nándar. Dæmi um slíka þjónustu eru hárgreiðslustofur en landsmenn hafa ekki fengið að fara í klippingu í tæpar tvær vikur.

Blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson er einn af þeim sem vekur athygli á málinu á Facebook síðu sinni en hann beinir þar spjótum sínum að fjölmiðlamanninum Agli Helgasyni.

Egill Helgason í sjónvarpsþættinum Kiljunni í kvöld.
Skjáskot/RÚV

„Meiri forréttindamelurinn hann Egill! Af hverju fær hann klippingu á Covid-tímum en enginn annar á Íslandi?“ spyr Jakob og merkir Egil í færslunni þannig líklegast er um að ræða góðlátlegt grín.

„Nú er Egill einn harðasti lokunarsinni landsins og svo laumar hann sér í klippingu og gefur þríeykinu langt nef,“ segir hann enn fremur og spyr meðal annars hvort Víðir viti af málinu.

Málið virðist þó hafa einfaldar skýringar en Egill sjálfur segir: „Egill er svo vel kvæntur. Hann á konu sem er margt til lista lagt.“ Jakob svarar á léttu nótunum að svo hlyti að vera og hrósar konu hans fyrir flott verk.

Færslu Jakobs og samskiptin við Egil má lesa hér fyrir neðan.

Meiri forréttindamelurinn hann Egill! Af hverju fær hann klippingu á Covid-tímum en enginn annar á Íslandi?

Posted by Jakob Bjarnar Gretarsson on Miðvikudagur, 11. nóvember 2020