Jakob Bjarnar: „Fólk í hálft ár á launum við að gera ekki neitt“

Jakob Bjarnar Grétarsson var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann hefur sterkar skoðanir á hinum ýmsu hlutum og lætur fátt kyrrt liggja.

Sýnt var frá starfsemi í Alþingishúsinu í RÚV fréttum í vikunni sem Jakobi fannst ansi skondið: „Sko það er ekki búið að vera þing í hálft ár, athugið það. Þingið gegnir að vitaskuld afar mikilvægu aðhaldsfrumvarpi. Hún heilsaði upp á þingmenn og þeir alveg á rífandi ofurlaunum,“ sagði Jakob og hló.

Þá var einn nýr þingmaður sem ráfaði bara um þinghúsið og þar var enginn. Annar þingmaður var bara að hlusta á ABBA og fór í endurbætur á húsakynnum. Þú ert nú ánægður með það Gulli,“ sagði Jakob og beindi því að öðrum þáttastjórnandanna sem stýrt hefur byggingarþáttunum Gulli byggir á Stöð 2.

Jakob hélt áfram: „Ég veit ekki hvernig á að orða það sko. Við erum með fólk í hálft ár á launum við að gera ekki neitt. Ég held að Covid hafi því miður reynst mikill og góður happadrættisvinningur fyrir margan opinberan starfsmanninn. Menn fela sig á bakvið þetta. Vilja hafa það bara næs. Það er ljótt að segja það, en ég er hræddur um að ýmis pappírspésinn hafi fagnað þegar Covid mætti á ný. Þá geta þeir sagt „Jæja, nú þarf ég ekki að mæta í vinnuna.“ Nei, ég segi svona. Ég veit það ekki. Er þetta djörf yfirlýsing?“ sagði Jakob en dró þó ekki í land.

Jakob talaði um allt milli himins og jarðar og nefndi meðal annars afsögn Baldurs Borgþórssonar úr Miðflokknum, sem Fréttablaðið greindi fyrst frá í gær: „Hann sagði nú reyndar þegar hann tilkynnti þetta seinni partinn í gær að ekki væri þörf á að tíunda ástæður ákvörðunar sinnar, að öðru leyti en því að hann hefur í störfum sínum í borgarstjórn ítrekað orðið vitni að starfsháttum og framkomu undir merkjum Miðflokksins sem hann gat að engu móti sætt sig við. Menn tóku það nú út úr þessu að þetta beindist að henni Vigdísi okkar,“ sagði Jakob Bjarnar.

Hann hefur ekki trú á endurrisu Miðflokksins: „Ég hefði nefnilega haldið að það væri sóknarfæri fyrir miðflokkinn í borginni, en nei, það virðist nú allt ganga þarna á afturfótunum. Þetta virðist allt vera að splundrast í frumeindir sínar. Steininn tók nú úr þegar Birgir Þórarinsson sveik lit sem hafði verið kosinn inn á þing við illan leik á vegum Miðflokksins og söðlaði svo um umsvifalaust eftir kosningarnar og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn,“ sagði Jakob.

Hann hélt áfram: „Sko, ef það væri nú farið í það, sem er eina vitið og þess vegna verður ekki farið í það út af þessu ömurlega kerfi sem við búum við, að það yrði kosið aftur á landinu öll, kosningarnar yrðu endurteknar. Það yrðu margir fúlir, en sennilega enginn eins og Birgir,“ sagði Jakob Bjarnar og lét staðar numið í bili.