Aðgerðarsinnahópurinn Jæja á Facebook sem er með 19 þúsund fylgjendur er ekki ánægður með Jón Gnarr um þessar mundir.
Jón Gnarr greindi frá því í gær að í ljósi stríðsins í Úkraínu hefur hann skipt um skoðun á Atlantshafsbandalaginu.
„Ég tel að það hafi verið rétt ákvörðun af stjórnvöldum að gerast ein stofnþjóða NATO og við eigum að sinna því verkefni af þakklæti, metnaði og virðingu,“ skrifaði Jón Gnarr í færslu á facebook síðu sinni.
Hann kveðst standa á hugmyndafræðilegum tímamótum, en hann hafi verið „alinn upp í nokkuð miklum kommúnisma“.
Jæja hópurinn sem hefur síðustu daga keppst við að reyna fá fólk til að sýna Rússum samúð eftir innrásina hjólar í Jón Gnarr.
„GMG! Þið þurfið ekki að styðja heimsvaldastefnu Bandaríkjanna og NATO! Pútin er ógeð og NATO er ógeð á sama tíma. Ekki meira stríð!“ segja þau í færslu á Facebook og deila mynd af Jóni.