Iva Marín tjáir sig við Sölva Tryggva: ,,Þetta ýfði upp gömul sár sem ég hafði fengið áður“

Iva Marín Adrichem er nýjasti gestur hlaðvarps Sölva Tryggvasonar og fóru þau saman um víðan völl í samtali sínu.

Í viðtalinu segir Iva að hún hafi verið verið forvitið barn og umgengist fullorðið fólk mikið, ekki síst vegna þess að hún var blind:

,,Ég hef alltaf verið fyrirferðamikil og uppreisnargjörn. Ég var barn sem var alltaf að hoppa og hlaupa og hafði hátt. Mér fannst ekki farið með mig eins og önnur börn. Bæði út af minni skerðingu og svo var ég líka mjög forvitinn og þreifst á því að hlusta á fullorðna fólkið tala. Ég var 10 ára þegar bankahrunið var og ég man að mamma þurfti að útskýra fyrir mér Icesave, kúlulán og orsakir hrunsins. Á sama tíma voru jafnaldrar mínir bara úti að leika sér. Ég held að bæði það hvað ég fór snemma að kynna mér alls konar hluti og líka að ég upplifði mismunun hafi ollið því að ég var mjög reið sem unglingur,” sagði Íva meðal annars um barnæsku sína.

Aðspurð segir Iva að fólk sem hefur fulla sjón megi hafa ákveðna hluti í huga þegar það umgengst blinda en hún sjálf segist helst kunna að meta þegar fólk grípur ekki of mikið fram fyrir hendurnar á henni.

,,Ég held að fólk mikli þetta of mikið fyrir sér. Stundum er ég lengur að hlutum, en það er líka af því að ég er fullkomnunarsinni. Fólk má alveg leyfa manni að gera mistök og mér finnst mjög gott ef fólk leyfir mér að gera mistök og reka mig á, en ekki grípa stöðugt fram fyrir hendurnar á manni,” segir hún.

Í eldlínunni undanfarið

Iva hefur verið í eldlínunni undanfarið eldlínunni eftir að hún var tekin úr myndböndum Ferðamálastofu vegna skoðana hennar. Hún segir atburðarrásina hafa verið erfiða, en það hafi þó hjálpað að hafa haft fyrri reynslu af því að vera óvinsæl hjá ákveðnu fólki:

,,Þetta ýfði upp gömul sár sem ég hafði fengið áður og ég hafði tekið meðvitaða ákvörðun um að draga mig úr umræðunni sem mér fannst orðin mjög hatursfull og of tímafrek. Ég hef verið í alls konar umræðu talsvert lengi og stundum opinberlega. En það var í kringum 2018 sem ég byrjaði að finna að ég varð óvinsæl hjá ákveðnu fólki. Ég byrjaði á að afneita eigin jaðarsetningu og það var fyrsta skrefið í að ákveðnum hóp af fólki hætti að líka við mig. Ég umgekkst mikið af fólki sem skilgreinir eigin þjóðfélagsstöðu alveg í döðlur og lifir lífinu miðað við þær breytur sem einkenna þína stöðu. Bæði jaðarsetningu og forréttindi. Þú lifir í raun í valdastrúktur og ert mjög meðvituð um þína stöðu. Á einhverjum punkti fattaði ég að ég vildi ekki lifa lífi mínu þannig og það var talsvert stökk. Þá fann ég að sumir urðu mjög reiðir út í mig og þar fékk ég fyrst að kynnast því hvernig það er að vera óvinsæl fyrir það eitt að móta eigin afstöðu og taka sjálfstæðar ákvarðanir.”

Hægt er að horfa á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.