Íslenskur lánardrottinn hafi myrt Jón Þröst

Írskur fjöl­miðill greinir frá því í dag að Jón Þröstur Jóns­son hafi verið myrtur af öðrum Ís­lendingi í Dublin í fyrra. Maðurinn er sagður hafa lánað Jóni pening sem hann svo tapaði á póker­móti. Í kjöl­farið hafi maðurinn myrt Jón fyrir slysni. Vísir greindi fyrst frá þessu.

Jón hvarf þann 9. febrúar í fyrra í Dublin. Hann var þar á­samt kærustu sinni til að taka þátt á póker­móti. Síðast sást til hans á gangi um hverfi í norður­hluta Dublin.

Leit að Jóni hafði gengið illa og lítið af vís­bendingum komið fram síðustu mánuði þar til ís­lenskur fangi, sem situr inni fyrir stuld, setti sig í sam­band við fjöl­skyldu Jóns til að greina henni frá því að sam­fangi hans hefði myrt Jón. Írski fjöl­miðillinn segir morðingjann þannig vera mann sem nú situr inni á Ís­landi.

Jón á að hafa tapað rúm­lega fjögur þúsund evrum í ó­lög­legum póker þetta kvöld og voru evrurnar í eigu ís­lenska glæpa­mannsins.

Í sam­tali við Frétta­blaðið vildi Karl Steinar Vals­son, yfir­lög­reglu­þjónn hjá mið­lægri rann­sóknar­deild Lög­reglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, ekki stað­festa þetta. Hann sagðist þó geta stað­fest að lög­reglu hefðu borist ýmsar á­bendingar sem hún hefði verið að skoða og viðrað við írsk yfir­völd sem stýra rann­sókninni.