Ís­lenskur flug­stjóri fær lof fyrir hlaða töskum sjálfur vegna starfs­manna­skorts í Dublin: „Takk, Kafteinn“

Flug­stjóri hjá ís­lenska flug­fé­laginu Play hefur vakið mikla at­hygli á netinu eftir hann náðist á mynd­band að hlaða töskum flug­vélarinnar sem hann stýrir sjálfur.

Flug­fé­lagið deildi mynd­bandinu upp­haf­lega og hefur flug­stjórinn fengið mikið lof í at­huga­semdum. Starfs­manna­skortur á flug­völlum hefur verið að valda seinkunum víða um heim.

Flug­­vélin, sem stödd var í Dublin í Ír­landi, varð fyrir sein­kunn vegna starfs­manna­skorts á flug­vellinum í Dublin vegna Co­vid-19 smita. Flug­­stjórinn tók því málin í eigin hendur og hlóð töskum far­þega vélarinnar í flug­­vélina sjálfur, til þess að flýta fyrir brott­­för vélarinnar.

Play fagnar í dag að ár er liðið frá því að flug­fé­lagið fór í sitt fyrsta flug, sú flug­ferð var til London í Bret­landi. 320 þúsund manns hafa síðan flogið með þeim. Á­fanga­staðir fé­lagsins eru í dag 25 talsins.