Íslenskt fyrirtæki leitar að drykkfelldum starfsmanni – „Pavel fékk aðra vinnu“

Það er ekki á hverjum degi sem fyrirtæki hér á landi óska eftir drykkfelldri manneskju til starfa. Ein slík auglýsing hefur þó vakið athygli á samfélagsmiðlum en hún er frá veitingastaðnum Hosiló.

Hosiló er veitingastaður á Hverfisgötu og birti staðurinn auglýsingu á Facebook-síðu sinni í dag sem vakið hefur talsverða athygli. „Pavel fékk aðra vinnu,“ segir í færslunni og fylgja eftirfarandi skilaboð í kjölfarið:

„Okkur vantar hjálp. Við erum að leita að, drykkfelldri eða bara góðri, manneskju í þjónustustarf. Hófleg drykkja og laun í boði,“ segir í auglýsingunni og eru áhugasamir hvattir til að senda inn umsókn á netfangið [email protected].