Dæmi eru um að íslenskir stóreignamenn hafi keypt rafmyntir fyrir tugi milljóna króna. Þetta segir Hlynur Þór Björnsson, framkvæmdastjóri Bálka miðlunar, í Viðskiptablaðinu í dag.
Hlynur segir algengt að einstaklingar vilji verja 100 til 500 þúsund krónum í kaup á rafmyntum en dæmi séu um mun hærri upphæðir.
„Þetta hefur líka verið stóreignafólk sem vill dreifa áhættunni og sér kosti í að eiga nokkur prósent af eignasafni sínu í rafmyntum. Við getum og höfum verið að aðstoða fólk með viðskipti fyrir á milli 50 og 100 milljónir króna.“
Hlynur segir að viðhorfsbreyting hafi orðið á undanförnum árum. Viðhorfið sé ekki lengur þannig að einungis glæpamenn eða tölvunördar noti rafmyntir á borð við Bitcoin.
„Rafmyntir eru rekjanlegar þannig að það er hægt að rekja allar millifærslur. Flestar kauphallir með rafmyntir þurfa að standast kröfur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka,“ segir hann meðal annars.