Það tók ekki marga klukkutíma að bera kennsl á íslenskan mann sem Skotinn Richard Fowlie kynntist á námsárum þeirra í Edinborg á árunum 1960 til 1962. Fréttablaðið birti áhugaverða frétt um málið síðastliðinn föstudag sem Hringbraut fjallaði meðal annars um.
Richard og íslenski maðurinn urðu góðir vinir á sínum tíma og héldu sambandi með bréfaskriftum eftir að Íslendingurinn flutti aftur heim til Íslands. Eins og oft vill verða slitnaði upp úr samskiptunum með tímanum en Richard hugsaði þó oft til vinar síns og velti fyrir sér hvernig honum hefði reitt af.
Hann hafði reynt ýmislegt til að finna manninn, meðal annars heimsótti hann Ísland og spurðist fyrir en varð einskis vísari. Eftir að hann fann gamla mynd í hirslum sínum á heimili sínu ákvað hann að hefja leitina aftur.
Hann sendi því bréf til ritstjórnar Fréttablaðsins þar sem hann óskaði eftir aðstoð. Nafn vinarins var honum ekki í fersku minni og minnti hann að það væri eitthvað í líkingu við „Engel Johannsson“.
Eftir að fréttin birtist tók það aðeins nokkra klukkutíma að hafa upp á manninum. Íslenski vinurinn hét Egill G. Thorarensen og var fæddur árið 1944. Hann féll frá árið 2013 eftir baráttu við erfið veikindi, að því er fram kom í umfjöllun Fréttablaðsins á laugardag.
Í frétt blaðsins kom fram að fjölmargar ábendingar hefðu borist eftir að fréttin birtist og komst blaðamaður í samband við fjölskyldumeðlim Egils heitins. Þótti augljóst að myndin væri af Agli.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Fowlie að hann væri undrandi yfir því hversu skamman tíma leitin hefði tekið. Hann kvaðst þó vera þakklátur fyrir að hafa fengið fregnir af afdrifum vinar síns þó að tíðindin væru sorgleg.