Nú er orðið ljóst að Daði og Gagnamagnið munu ekki flytja lag sitt í beinni útsendingu á sviði í Eurovision þetta árið, hvorki annað kvöld né á laugardagskvöld fari svo að lagið fari áfram.
Í tilkynningu sem birtist á vef Eurovision.tv nú í hádeginu kemur fram að íslenski hópurinn standi saman og vilji koma fram sem ein heild. Það að einn meðlimur þurfi nú að sæta einangrun geri það að verkum að aðrir meðlimir hópsins muni ekki fara á svið. Breytir þá engu hvort skimun leiði í ljós að aðrir hafi ekki smitast.
Jóhann Sigurður Jóhannsson, liðsmaður Gagnamagnsins, steig fram á Instagram-síðu sveitarinnar í morgun þar sem hann greindi frá því að hann væri smitaður. Jóhann er eðli málsins samkvæmt miður sín enda hafði hópurinn lagt mjög hart að sér við undirbúning keppninnar.
Nú er orðið ljóst að upptaka af flutningi Daða og Gagnamagnsins verður spiluð í tónleikahöllinni í Rotterdam annað kvöld og einnig á laugardagskvöld, fari svo að lagið komist áfram.