Smit greindist innan íslenska Eurovision-hópsins sem er nú í Rotterdam en allur hópurinn hefur nú verið sendur í sóttkví vegna málsins. Allir hafa nú verið sendir í sýnatöku til að komast að því hvort fleiri hafi smitast en Ísland á að stíga á svið næstkomandi fimmtudag í seinni undanúrslitum keppninnar.
Þrátt fyrir að það hafi ekki verið greint frá því nákvæmlega hver í hópnum sé nú smitaður staðfestir Rúnar Freyr Gíslason í samtali við Fréttablaðið að umræddur einstaklingur sé ekki með í atriðinu á sviði og því ljóst að Daði Freyr og félagar hans í Gagnamagninu hafi ekki greinst.
Enn er óljóst hvað verður um íslenska hópinn en tveir valkostir eru í boði ef hópurinn losnar ekki úr sóttkví fyrir fimmtudaginn. „Aðalatriðið er að við verðum með í Eurovision. Það er búið að taka upp atriðið og það verður á keppninni sjálfri en auðvitað viljum við vera „live“ á sviðinu eins og hinir,“ segir Rúnar Frey r í samtali við Fréttablaðið.
„Við bara hlýðum því eins og við höfum hlýtt öllum reglum hingað til, við höfum farið ótrúlega varlega og passað okkur mjög mikið en svona er þessi veira, hún getur smitast með alls konar hætti,“ segir Rúnar.
Fréttirnar af íslenska hópnum koma einum degi eftir að greint var frá því að pólski hópurinn væri kominn í sóttkví eftir að einn í hópnum greindist með veiruna. Ekki liggur fyrir hvort fleiri hafi smitast í pólska hópnum en þau eru með Íslandi í undanúrslitariðli.