Íslenska ríkið eignast farice að fullu

Íslenska ríkið hefur samið við Arion banka um kaup á um 38 prósent hlut bankans í félaginu. Eftir kaupin á ríkissjóður um 65 prósent hlutafjár Farice en Landsvirkjun 33 prósent. Félagið er því nú alfarið í eigu ríkisins. Kaupverðið á hlutnum er 740 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Íslenska ríkið hefur skilgreint fjarskiptasambönd til útlanda sem innviði og eru kaupin á Farice gerð með það í huga. Arion banki varð hluthafi í Farice árið 2010 í kjölfar fjárhagslegrar endurskipulagningar en þar sem starfsemi Farice er ekki hluti af kjarnastarfsemi bankans hefur hluturinn verið til sölu síðan þá. 

Farice ehf. var stofnað í nóvember 2002 af íslenska ríkinu og íslenskum og færeyskum fjarskiptafyrirtækjum. Tilgangur fyrirtækisins var að leggja sæstrenginn FARICE-1 sem tekinn var í notkun í janúar 2004. Fimm árum síðar lagði fyrirtækið jafnframt DANICE sæstrenginn til Danmerkur. Farice er langstærsti aðilinn í sölu á samböndum milli Íslands og útlanda. Viðskiptavinir fyrirtækisins eru fjarskiptafyrirtæki hvers konar og stærri viðskiptavinir gagnavera.