Laura Liu, kínverskur fiðluleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands, gagnrýnir Íslensku óperuna harðlega fyrir sýninguna Madama Butterfly sem frumsýnd var í vikunni í Hörpunni.
Hún segir sýninguna ýta undir rasískar staðalímyndir og segist hafa fengið mjög dónaleg viðbrögð frá hljómsveitarstjóra.
Hún spyr á Fa hvort Íslendingar séu farnir að bjóða upp á „yellowface" á ný, en það er þegar leikari, sem er ekki af asískum uppruna, litar andlit sitt til að leika asískt hlutverk.
Slík hefð var einnig algeng meðal hvítra leikara sem léku svört hlutverk með svokölluðu „blackface“. Sú hefð var mjög algeng meðal leikara og grínista á fyrri hluta 20. aldar en hefur verið að mestu leyti verið lögð niður sökum gagnrýni um rasisma.
Íslenska óperan stendur á bak við sýninguna Madama Butterfly, óperu eftir ítalska tónskáldið Puccini og gerist í Japan um aldamótin 1900. Óperan fjallar meðal annars um 15 ára japanska stúlku sem verður ástfangin af bandarískum sjóliðsforingja. Sjóliðinn endar á því að giftast stúlkunni og gerir hana ólétta áður en hann yfirgefur bæði hana og Japan í þrjú ár.
„Til að byrja með þá eru þau að sýna óperu frá aldamótunum 1900 sem gerist bæði í Bandaríkjunum og Japan. Óperan er eftir ítalskan mann sem hafði hvorki komið til Bandaríkjanna né Japans. Þannig þessi sýning er í rauninni bara að ýta undir þær staðalímyndir sem þetta tónskáld hafði um asískt fólk til að byrja með,“ segir Laura.
Fjölmargir taka undir með henni í Facebook þræði hennar en Levanter Török sýningarstjórinn býður Laura á sýningu svo hún sjái að sýningin er ekki rasisk.
„Við elskum þegar hvítt fólk útskýrir menningu annarra fyrir þeim,“ segir Larissa Weidler undir færslunni ern Török hefur eytt færslu sinni.
„Þessi ummæli anga af forréttindum og rasisma,“ segir Elizabeth Lay.