Íslenska landsliðið fær á baukinn: „Íslenska fótboltaævintýrið er búið“

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu fær slæma útreið á samfélagsmiðlum eftir slaka frammistöðu gegn Armeníu í undankeppni HM í dag. Ísland tapaði 2-0 gegn Armeníu sem situr í 99. sæti heimslista FIFA á meðan Ísland er í 46. sæti.

Armenar skoruðu bæði mörk sín í seinni hálfleik og vakti lítill ákafi íslensku varnarmannanna athygli. Bæði mörkin komu með fínum skotum utan úr teignum sem Hannes Þór Halldórsson í markinu réði ekki við, en ljóst að bakverðir íslenska liðsins hefðu getað gert miklu betur.

Ísland hefur nú tapað báðum leikjum sínum í riðlinum og ekki enn skorað mark eftir 3-0 tap gegn Þjóðverjum í vikunni. Líkurnar á að Ísland komist í lokakeppni HM eru því ekki ýkja miklar sem sakir standa en vissulega margir leikir enn eftir.

Landsmenn voru duglegir að tísta um leikinn og hér má sjá brot af umræðunni. Óhætt er að segja að menn hafi verið svekktir með frammistöðu íslenska liðsins, skiljanlega kannski enda býsna góðu vön eftir góðæri síðustu ára.

<