Íslenska auglýsingastofan, sem feðgarnir Þormóður Jónsson og Baldvin Þormóðsson keyptu fyrir skömmu, hefur fest kaup á rekstri og starfskröftum hönnunarteymisins Arnar&Arnar.
Tvíeykið, þeir Arnar Fells Gunnarsson og Arnar Ingi Viðarsson, eignast um leið hlut í Íslensku auglýsingastofunni sem á næstunni mun flytja starfsemi sína í Málmsteypuhúsið við Skipholt 23. Þessi nýja liðveisla er mikilvægt skref í átt að því yfirlýsta markmiði að að tefla saman fjölbreyttri þekkingu og áhugasviðum í rekstri stofunnar. Þess verður sérstaklega gætt að nýi og gamli skóli hönnunar, auglýsingagerðar og markaðsfærslu fái að mætast í gagnkvæmri virðingu og samhentu átaki metnaðarfullra starfsmanna á ólíkum aldri, af ólíkum kynjum og með ólíka menntun, bakgrunn og reynslu.
Þeir Arnar Fells og Arnar Ingi hafa starfað saman með ýmsum hætti um langt skeið og unnið til ýmissa viðurkenninga á þeim tíma. Um árabil unnu þeir hjá Hönnunarmiðstöð Íslands, en þar komu þeir m.a. hönnunartímaritinu HA Design Magazine á laggirnar. Á þessu ári voru Arnar&Arnar tilnefndir til þriggja verðlauna hjá FÍT og hlutu þar á meðal gullverðlaun fyrir hönnun bókarinnar Gjöfin til íslenzkrar alþýðu sem gefin var út af Listasafni ASÍ.
„Það er afar spennandi að ganga til liðs við þá feðga og fylkja með þeim liði undir þessum rótgrónu merkjum. Við ætlum okkur að feta nýjar slóðir og um leið marka okkur ferska sérstöðu á markaðnum. Það verður fyrst og fremst metnaðarfull hönnun og hugsun sem mun leiða okkar starf og við ætlum okkur ekkert minna en að gera stórkostlega hluti frá og með fyrsta degi,“ segja þeir félagar.
Þormóður Jónsson, stjórnarformaður Íslensku auglýsingastofunnar:
„Það er mikill fengur að þessum öfluga liðsauka. Við Baldvin réðumst upphaflega í þetta verkefni með það að leiðarljósi að laða til okkar margt af besta fólkinu sem starfar á íslenskum auglýsingamarkaði og innkoma Arnars&Arnars er fyrsta skrefið í þá átt. Stofan er fyrir vikið nú þegar orðin fyllilega tilbúin til þess að höndla stærri sem smærri verkefni. Við leggjum fullir tilhlökkunar af stað í þessa vegferð og stefnum að því að stækka hópinn hratt og örugglega í takti við umsvifin.“