Ís­lensk kona fannst látin í Dan­mörku – Grunur um morð

Ís­lensk kona sem lýst var eftir í dönskum fjöl­miðlum í gær fannst látin í morgun, að því er segir í til­kynningu frá dönsku lög­reglunni.

Konan var 43 ára og hefur fyrr­verandi sam­býlis­maður hennar, 51 árs gamall, verið hand­tekinn vegna gruns um að hafa orðið henni að bana. Ekkert hafði spurst til konunnar síðan á fimmtu­dag í síðustu viku.

Í til­kynningu sem lög­reglan birti á heima­síðu sinni segir að konan hafi fundist látin á heimili sínu í Veilgård­spar­ken í Malling. Réttar­rann­sókn fer fram sem mun skera úr um hvort líkið sé af henni, en að sögn Michael Kjeld­ga­ard, yfir­manns lög­reglunnar, eru yfirgnæfandi líkur á að líkið sé af konunni sem lýst var eftir.

Í til­kynningu lög­reglu segir enn fremur að fyrr­verandi sam­býlis­maður hennar, sá hinn sami og til­kynnti um hvarf hennar, hafi verið hand­tekinn vegna málsins. Telur lög­regla að hann hafi verið við­riðinn and­lát hennar og verður farið fram á gæslu­varð­hald yfir honum í dag.