„Íslensk framleiðsla er allt annað en sjálfsögð. Markaðssvæðið er lítið og erlendar vörur oft ódýrari. En það að velja íslenskt tryggir ekki aðeins þúsundir starfa, heldur hefur bein áhrif á meirihluta íslenskra heimila.“
Þetta er meðal þess sem kemur fram á vefsíðunni islensktskiptirmali.is, en um er að ræða sameiginlegt markaðsátak sex íslenskra fyrirtækja sem öll hafa langa reynslu af framleiðslu matvæla.
Fyrirtækin sem um ræðir eru MS, Ölgerðin, Nói Síríus, Kjörís, Freyja og Gæða bakstur.
„Í núverandi landslagi, þar sem við horfum fram á mesta samdrátt í langan tíma, er mikilvægara en nokkru sinni að hugsa um íslenska framleiðslu,“ segir á vefsíðunni en þar kemur jafnframt fram að málið snúast um meira en samstöðuna.
„Einnig þarf að mæta síauknum kröfum neytenda um gæði, umhverfisvitund, rekjanleika og gott eftirlit. Við erum í góðum málum hvað þetta varðar og íslenskar vörur standa þeim innfluttu fyllilega samanburð.“
Að undanförnu hafa birst auglýsingar sem sýna nokkrar vinsælar vörur sem hafa fylgt Íslendingum undanfarna áratugi. Búið er að setja þær í erlendan búning, ef svo má segja, eins og meðfylgjandi myndir bera með sér.