Íslendingurinn sem vann tæplega 60 milljónir króna í Víkingalottóinu síðastliðinn miðvikudag er aðeins 24 ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslenskri getspá.
Í tilkynningunni segir að þessi ungi einstaklingur sé með forgangsröðunina á hreinu: Fyrst ætli hann að kaupa sér íbúð og síðan bíl og svo ætlar hann að gera eitthvað skemmtilegt fyrir afganginn.
„Hann hafði keypt sér 10 raða Vikinglottomiða á lotto.is kvöldið fyrir útdrátt, mundi eftir honum seint á miðvikudagskvöldið og ætlaði varla að trúa því sem hann sá þar, skilaboð um að hann hafði unnið tæpar 60 milljónir.“
Ungi maðurinn ætlar að þiggja fjármálaráðgjöf sem öllum vinningshöfum býðst sem vinna stóra vinninga í Lottó. „Starfsfólk Getspár og Getrauna óskar þessum heppna unga manni innilega til hamingju með vinninginn,“ segir í tilkynningunni.