Íslendingurinn sem leitað hefur verið að í Svíþjóð undanfarna daga, eftir að hafa fallið af sæþotu þann 25. september síðastliðinn, fannst látinn í morgun.
Frá þessu greinir Olandsbladet í Svíþjóð. Í fréttinni kemur fram að maðurinn hafi fundist klukkan 10:25 að staðartíma og búið sé að upplýsa aðstandendur hans um málið.
Í fréttinni er haft eftir Evelinu Olsson, talsmanni lögreglunnar, að kafarar hafi fundið manninn í sjónum skammt fyrir utan bæinn Borgholm, ekki langt frá staðnum þar sem hann féll útbyrðis.
Tekið er fram að björgunarsveitir í Kalmar hafi stundað köfunaræfingar við Köpingsvik, þar sem slysið varð, og kafar á þeirra vegum hafi fundið hann.
Fjölmennur hópur Íslendinga hélt utan á dögunum til að taka þátt í leitinni, en leitarsvæðið sem um ræðir var mjög stórt og umfangsmikið.