Íslendingur verður ákærður fyrir að fremja hrottalegt morð í Bandaríkjunum

Ákveðið var í vikunni að Daníel Gunnarsson yrði ákærður fyrir morð og limlestingu í Kaliforníu. Ákæran verður gefin út síðar í þessum mánuði.

Fréttablaðið greinir frá þessu, en líklegt þykir að örlög Daníels verði ráðin af kviðdómi vestanhafs.

Daníel, sem er rúmlega tvítugur, var í maí í fyrra handtekinn grunaður um að hafa myrt Katie Pham, sem var fyrrverandi bekkjarsystir hans. Þá er hann jafnframt grunaður um að hafa limlest lík hennar.

Hann á ís­lenskan föður og tékk­neska móður, en flutti ungur með móður sinni til Kali­forníu, nánar til­tekið til borgarinnar Ridgecrest í Kern-sýslu, þar sem morðið á Pham var framið.

Nánar er fjallað um málið á vef Fréttablaðsins.