Ís­lendingur vann 48 milljónir í gær­kvöldi

Ís­lendingur hafði heppnina með sér í gær­kvöld þegar dregið var í EuroJack­pot. Hann er einn af sex vinnings­höfum sem deila með sér 2. vinningi og fær hver þeirra rúm­lega 48,3 milljónir.

Miðinn góði var keyptur hjá Bitanum, Iða­völlum 14b í Reykja­nes­bæ. Hinir fimm miðarnir voru allir keyptir í Þýska­landi.
1. vinningur gekk ekki út og flyst því vinnings­upp­hæðin yfir á 1. vinning í næstu viku. 4 miða­hafar skiptu með sér 3. vinningi og fá þeir rúmar 25,5 milljónir hver. Einn miði var keyptur í Noregi og þrír í Þýska­landi.

Einn heppinn miða­hafi var svo með allar réttar tölur í réttri röð í Jóker og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á vefnum­lotto.is. Þá voru fjórir með 4 réttar tölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund krónur í vinning hver.

Einn miði var keyptur í Happa­húsinu í Kringlunni, einn miðinn var í á­skrift og tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu.