Ís­lendingur lést í Rúss­landi vegna CO­VID-19

Ís­lenskur karl­maður um sex­tugt lést í rúss­nesku borginni Kamtsjaka í Rúss­landi í gær. Maðurinn lést af völdum lungna­bólgu sem hann fékk vegna CO­VID-19.

Vísir greindi frá þessu nú á öðrum tímanum í dag.

Í fréttinni kemur fram að maðurinn hafi verið lagður inn á gjör­gæslu­deild fyrir helgi, eða um tveimur vikum eftir að hann var fyrst lagður inn. Maðurinn er sagður hafa starfað í tengslum við sjávar­út­veg í Rúss­landi á­samt öðrum Ís­lendingum. Voru sam­starfs­menn mannsins upp­lýstir um málið í morgun.