Íslenskur karlmaður lést í eldsvoða þegar eldur kom upp í bílskúr á Adeje á Spáni á sunnudag. Greint er frá málinu í spænskum miðlum en þar kemur fram að viðbragðsaðilar hafi fengið tilkynningu snemma morguns sunnudag 6. febrúar, klukkan 7.30, um eld. Fréttablaðið greinir frá þessu á vef sínum.
Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að eftir að slökkviliðsmenn höfðu slökkt eldinn var ljóst að þrír bílar brunnu í bílskúrnum og að inni í einum þeirra var að finna lík manns sem var mjög illa farið.
Fram kemur á vef Canary Weekly að spænska ríkislögreglan hafi tekið málið að sér og muni sjá um rannsókn málsins. Þar kemur einnig fram að lögreglan hafi farið á vettvang og tekið ýmis sýni og að á þessum tímapunkti rannsóknarinnar sé ekkert útilokað um eldsupptök eða andlát mannsins.
Í frétt spænska fjölmiðilsins El Día kemur fram að maðurinn hafi verið íslenskur ríkisborgari og um fimmtugt. Heimildir Fréttablaðsins herma einnig að maðurinn hafi verið Íslendingur. Í umfjöllun Elí Día kemur fram að flest bendi til þess að um slys hafi verið að ræða. Ein sviðsmyndin geti verið sú að maðurinn hafi sofnað inni í bílskúrnum eftir að hafa kveikt sér í sígarettu.
Samkvæmt upplýsingum frá borgaraþjónustu utanríkiráðuneytisins hefur málið ekki komið á þeirra borð, að því er fram kemur á vef Fréttablaðsins.