Íslenskur karlmaður hefur verið handtekinn á Alicante á Spáni, en maðurinn á yfir höfði sér allt að tólf ára fangelsi í Danmörku, meðal annars fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni.
Spænskir fjölmiðlar greindu frá handtökunni í gær.
Evrópsk handtökuskipun hafði verið gefin út á hendur manninum sem flúði réttvísina í Danmörku. Auk þess að brjóta gegn dóttur sinni, þegar hún var tólf ára gömul, er maðurinn grunaður um alvarlega líkamsárás og vörslu barnaníðsefnis.
Í frétt El Confidencial kemur fram að brot mannsins hafi verið framin á árunum 2006 til 2010, bæði í Danmörku og á Íslandi. Er maðurinn sagður hafa brotið gegn dóttur sinni tíu sinnum og beitt hana alvarlegu líkamlegu ofbeldi ef hún sýndi mótspyrnu.
Rannsókn málsins hófst í júní síðastliðnum þegar dönsk yfirvöld fóru fram á að maðurinn yrði framseldur til Danmerkur vegna málsins. Maðurinn var handsamaður í bænum Benissa á Alicante í vikunni.