Íslendingur dæmdur fyrir morð – Stefán fékk lífstíðardóm

Íslenskur karlmaður, Stefán Gíslason, fékk í mars síðastliðnum lífstíðardóm fyrir morð í Flórída í Bandaríkjunum. Fjallað hefur verið um mál Stefáns í íslenskum fjölmiðlum en dómur er nú fallinn í málinu.

Stefán var ákærður fyrir að myrða mann að nafni Dillon Shanks, sem var 32 ára.

Sam­kvæmt heimildum Frétta­blaðsins, sem greindi frá málinu á sínum tíma, á Stefán ís­lenskan föður og banda­ríska móður.

Hann var ungur að árum þegar hann fluttist með foreldrum sínum til Flórída og hefur búið þar alla ævi. Dillon var skotinn til bana og fannst lík hans í heimahús í apríl 2020.

Stefán var sagður hafa hringt í lögregluna og tjáð henni að Dillon hefði framið sjálfsmorð. Vegna vitnisburðar tveggja aðila taldi lögreglan hins vegar að svo hafi ekki verið og var það staðfest með umræddum lífstíðardómi í mars síðastliðnum.