Íslendingar eru sú Evrópuþjóð sem vinnur lengstu starfsævina en hún er nú áætluð 45,8 ár. Að sama skapi er starfsævi einstaklings innan Evrópusambandsins 35,9 ár. Þetta er samkvæmt nýjum lista Eurostat sem Morgunblaðið fjallar um í dag.
Meðalstarfsævi karla hér á landi er 48,6 ár en kvenna 43,7 ár.
Á eftir Íslandi kemur Sviss með 42,6 ár, Svíþjóð með 42 ár og Holland með 41 ár. Þetta eru einu Evrópuríkin þar sem starfsævin er yfir 40 ár.
Miðað er við tölur frá árinu 2019 og vísa tölurnar til þess hvað fimmtán ára einstaklingur í ríkjum Evrópu árið 2019 gat vænst þess að starfsævin yrði löng.
Starfsævin er styst á Ítalíu, eða 32 ár, Króatíu, 32,5 ár og á Grikklandi, 33,2 ár.