Mikill meirihluti landsmanna er fylgjandi því að skattar sem auðugasta fólkið á Íslandi greiðir ættu að vera hærri. Þetta er samkvæmt niðurstöðum könnunar sem MMR gerði fyrir Sósíalistaflokk Íslands.
Alls sögðu 18% aðspurðra að skattarnir mættu vera óbreyttir en aðeins 5% vildu að skattarnir á ríkasta fólkið yrðu lækkaðir.
Í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum vegna könnunarinnar kemur fram að mikill meirihluti í öllum hópum vilji hækka skatta á hin ríku, 74% karla og 80% kvenna og 74% hinna yngstu og 86% hinna elstu. Þá séu 77% hinna mest menntuðu fylgjandi skattahækkunum á þá auðugustu og 81% hinna minnst menntuðu.
„Það er enginn munur á landsbyggð og höfuðborgarsvæðinu og lítill munur á stéttunum nema hvað ívið færri meðal stjórnenda og æðstu embættismanna vill hækka skatta á auðugasta fólkið, 62%, en í öðrum stéttum, frá 75% upp í 85%,“ segir í tilkynningunni.
Bent er á það að stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins eru síst hrifnir af skattahækkunum á hin ríku.
„Á meðan 77-98% fylgjenda annarra flokka vilja hækka skatta á hin ríku segjast aðeins 37% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins vilja hækka skatta á auðugasta fólki. Þetta er enn ein könnunin sem sýnir að stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins er algjörlega á skjön við meginþorra fólks. Ef við tökum fylgjendur allra hinna flokkanna saman þá vilja 87% þeirra hækka skatta á hin ríku en aðeins 37% stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins. Það er síðan magnað að afstaða þessa jaðarhóps sem kýs Sjálfstæðisflokkinn hefur ráðið mestu um uppbyggingu íslensks samfélags.“
Þá kemur fram að stuðningsmenn Sósíalista vilja helst hækka skatta á hin ríku, eða 98% fylgjenda flokksins. Næstir koma Píratar, 96%, þá Flokkur fólksins, 88%, Samfylkingin og VG, 85%, Viðreisn og Framsókn, 84%, þá Miðflokkurinn, 77%, og loks Sjálfstæðisflokkurinn, 37%.
Bent er á að Sósíalistaflokkurinn sé eini flokkurinn sem lagt hefur til afgerandi skattahækkanir á auðugasta fólkið fyrir þessar kosningar.
„Í tilboði sínu til kjósenda um umbyltingu skattkerfisins er kafli sem kallast Skattleggjum hin ríku. Þar segir að endurreisn skattheimtu á hin ríku snúist um að leggja á auðlegðarskatt til að endurheimta það sem auðugasta fólkið náði út úr sameiginlegum sjóðum á nýfrjálshyggjuárunum, að skattleggja fjármagnstekjur með sama hætti og launatekjur, setja á hátekjuþrep og skattleggja arf með sama hætti og aðrar tekjur, ef hann er umfram verð á góðri íbúð.“
Tekið er fram að könnunin hafi verið netkönnun og var hún gerð dagana 18. til 24. ágúst. 932 manns, 18 ára og eldri, voru spurðir og gáfu 850 upp afstöðu.