Útrunnin dós af Oskars surströmming hefur verið að gera allt vitlaust á Facebook-hópnum Brask og brall – allt leyfilegt að undanförnu.
Fréttablaðið ræðir í dag við Linnet Ríkharðsson, eiganda dósarinnar, sem segir að fjölmargir hafi gert tilboð og hæsta boð í gær hafi verið átta þúsund krónur – hvorki meira né minna.
Lyktin sem blossar upp þegar dósin er opnuð er engu lík og fær jafnvel þá allra hörðustu til að kúgast eða kasta upp í versta falli.
Aðspurður hvers vegna ásóknin í dósina er svona mikil, segir Linnet:
„Örugglega bara vegna þess að þetta er viðbjóður,“ segir hann.
Í Fréttablaðinu er rifjað upp eftirminnilegt innslag úr 70 Mínútum frá árinu 2004 þar sem þeir Auðunn Blöndal, Sverrir Þór Sverrisson og Pétur Jóhann Sigfússon opnuðu dós í settinu fyrir ógeðisdrykkinn svokallaða. Viðbrögðin voru rosaleg og var Pétur Jóhann ekki lengi að ná í ruslafötuna til að vera við öllu búinn.
Innslagið má sjá hér að neðan: