Það er ekki hættulaust með öllu að eiga viðskipti við góðlátlega en ýtna sölumenn á Tenerife. Eyjan fagra nýtur mikilla vinsælda meðal Íslendinga en talsvert hefur borið á svikum þar sem óheiðarlegir sölumenn einblína á eldra fólk og eftirlaunaþega.
Meðal annars hefur ítrekað verið varað við slíkum svikum af Íslendingum í fjölmennum Facebook-hópi hér á landi.
Daily Mail fjallaði á dögunum um þessa svikahrappa sem herja grimmt á eldri borgara á Tenerife. Gerði miðillinn út tálbeitu á áttræðisaldri sem fletti ofan af þrjótunum. DV fjallaði meðal annars um þetta á vef sínum í dag.
Bent er á það í umfjöllun Daily Mail að þúsundir breskra ellilífeyrisþega hafi lent í klóm svikaranna og tapað háum fjárhæðum. Þá sé greinilegt að svikahrapparnir einbeiti sér að eldri borgurum en láti yngri sólarelskendur í friði.
Er sérstaklega herjað á ferðamenn á syðri hluta eyjunnar – Playa Las Americas, Los Cristianos og Costa Adeje, sem eru afar vinsæl hjá breskum sem og íslenskum ferðamönnum.
Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að helsta svindlið gangi út á það að afar ágengir sölumenn reyni að lokka ferðamenn inn í verslanir sínar. Gangi það upp er reynt að pranga inn á ferðamennina fartölvur, spjaldtölvur eða snjallsíma á afar hagstæðu verði. Taki fórnarlömbin vel í það eru þeir beðnir um að borga lágt staðfestingargjald með korti, kannski 30 evrur, og síðan er sérstökum posa framvísað. Um er að ræða tæki sem afritar kortaupplýsingar og pin-númer kortanna.
Nánar má lesa um svindlið á vef DV.is.