Ís­lendingar nefna þau atriði sem þeir eru stoltastir af hér á landi

Þó að á­vallt sé hægt að gera betur er það engu að síður stað­reynd að Ís­lendingar geta verið stoltir af ýmsu. Hring­braut fjallaði í vikunni um at­hyglis­verðan þráð á Reddit þar sem Ís­lendingar voru spurðir út í helstu ó­kosti þess að búa á Ís­landi.

Sjá einnig: Ís­lendingar nefna helstu ó­kosti þess að búa á Ís­landi

Annar þráður, sem hefur ekki síður vakið at­hygli, fjallar um þau at­riði sem Ís­lendingar eru stoltastir af. Sá sem hóf um­ræðuna sagðist hafa heim­sótt landið einu sinni og hrifist mjög af landi og þjóð. Þegar þetta er skrifað hafa hátt í hundrað at­huga­semdir verið skrifaðar við færsluna.

Einn segir að hann sé mjög stoltur af þeim árangri sem Ís­land hefur náð í jafn­réttis­málum. Góður árangur hafi náðst í bar­áttunni fyrir jöfnum launum karla og kvenna og þá standi Ís­land mjög framar­lega þegar kemur að réttindum hin­segin fólks. Allir hafi að­gang að hreinu vatni, heil­brigðis­þjónustan sé til­tölu­lega ódýr og þá sé auð­velt að leggja stund á ýmsa menntun.

Þá segist við­komandi stoltur af þeim árangri sem ís­lenskir í­þrótta­menn hafa náð þrátt fyrir að við séum fá­menn þjóð. Í því sam­hengi eru silfur­verð­laun hand­bolta­lands­liðsins á Ólympíu­leikunum 2008 nefnd og góður árangur karla­liðsins á EM í fót­bolta 2016. Þá eigi Ís­land ó­grynni af öflugum lista­mönnum, Hildi Guðna­dóttur til dæmis sem vann til Óskars­verð­launa fyrr á þessu ári.

Fleiri nefna tón­listar­fólkið okkar, ekki síst í ljósi þess að tón­listar­menn njóta al­mennt ekki mikils stuðnings frá hinu opin­bera.

Þá nefnir annar ís­lensku náttúruna og sögu lands og þjóðar. Þá sé ís­lenska tungu­málið ein­stakt.

Einn segist stoltur af Ís­lendingum vegna stöðu landsins og veður­fars. „Um­hverfið hér er eitt það erfiðasta til að búa í, hræði­leg veður og stöðug ógn frá eld­fjöllum hefur gert Ís­lendingum erfitt fyrir í gegnum aldirnar.“ Ís­lendingar hafi á­vallt haldið á­fram þótt á móti blási og það sé eitt­hvað til að vera stoltur af. Setur við­komandi tengil á þessa mynd sem hann segir sýna anda okkar Ís­lendinga á­gæt­lega.

Annar segist stoltur af því að á Íslandi sé enginn her.

Þráðinn á Reddit má sjá hér.