Fjörugar umræður fara nú fram á Twitter um ljótustu götunöfnin á Íslandi og er óhætt að segja að af ýmsu sé að taka. Þeir sem ákveða götunöfn þurfa stundum að vera hugmyndaríkir og endurspeglast það ágætlega í sumum nöfnum sem finna má á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi.
„Ljótustu götunöfnin á Íslandi? Ég tilnefni Flyðrugranda, Gvendargeisla og allt sem endar á -barð eða -hvarf,“ segir málshefjandi umræðunnar.
Margir leggja orð í belg og tilnefnir rithöfundurinn Þórdís Gísladóttir til dæmis Mururima og Andrésbrunn. Aðrir nefna til dæmis Jöfursbás, Kalkofnsveg, Nethyl, Axlarhöfða, Fiskakvísl, Jöldugróf og Stöng. Þá eru götuheiti eins og Drómundarvogur, Ástu-Sólliljugata, Fénaðarklöpp, Gjúkabryggja og Krókeyrarnöf einnig nefnd.
Einn nefnir Glimmerskarð í nýju hverfi í Hafnarfirði og spyr hvort tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson eigi ekki örugglega heima þar.
Það eru eflaust ekki margir sem tilnefna eigin götu en það gerir almannatengillinn Særún Pálmadóttir þó. „Ég bý í Skektuvogi sem fær klárlega mitt atkvæði. Fæ alltaf eitt gott „ha?” þegar ég segi fólki hvar ég á heima.“
Önnur götuheiti sem nefnd eru:
Köllunarklettsvegur
Geirþrúðarhagi
Barðahvarf
Jóninnuhagi
17. Júnítorg
Heinaberg
Buðlabryggja
Gjúkabryggja
Martröð
Stöðulsholt
Stórikriki
Bygggarðar
Gnitakór
Ranavað á Egilsstöðum
Barmahlíð
Cuxhavengata
Þúsöld
Kólguvað
Ljótustu götunöfnin á Íslandi? Ég tilnefni Flyðrugranda, Gvendargeisla og allt sem endar á -barð eða -hvarf
— Inga mandarínustelpa (@Ingaboogie) November 15, 2022