Ís­lendingar nefna helstu ó­kosti þess að búa á Ís­landi

Ís­lendingar sem bú­settir eru hér á landi vita sem er að það fylgja því margir kostir að búa í frið­sælu, litlu og fal­legu landi. Þó Ís­land hafi sína kosti hefur það einnig sína galla. Á Reddit fara nú fram fjörugar um­ræður um helstu ó­kosti þess að búa á Ís­landi.

Um­ræðan fer fram á sér­stökum þræði um Ís­land á Reddit en 45 þúsund not­endur fylgja um­ræddum þræði. Ætla má að í þeim hópi séu margir út­lendingar enda fara allar um­ræður fram á ensku.

Sá sem hóf um­ræðuna bað Ís­lendinga um að nefna það sem mætti betur fara hér á landi.
Það kemur kannski ekki á ó­vart að meðal þess sem not­endur nefna er verð­tryggingin og hátt verð­lag á í­búðar­hús­næði. Bent er á að Ís­land sé eina landið í heiminum þar sem verð­tryggingin fyrir­finnst.

Einn segir allt að því von­laust fyrir ungt fólk að kaupa sér sína fyrstu fast­eign. „Fast­eigna­verð er allt of hátt. Ég er feginn að hafa keypt fyrir nokkrum árum. Það er brjál­æði hvað ungt fólk þarf að borga til að komast inn á markaðinn,“ segir einn.

Sá hinn sami nefnir einnig veðrið. „Veðrið er eigin­lega alltaf ömur­legt. Ís­land væri lík­lega besti staður í heimi til að búa á ef veðrið væri ekki alltaf svona leiðin­legt. Vindurinn fer sér­stak­lega í taugarnar á mér. Mér er sama um rigninguna eða kuldann en ég þoli ekki rokið.“

Þá nefnir einn að­gengi að geð­heil­brigðis­þjónustu sem mætti vera betri. Þannig mætti ríkið taka meiri þátt í niður­greiðslu þegar kemur að geð­heil­brigðis­þjónustu. „Bið­listi eftir ADHD-greiningu tekur til dæmis 12 mánuði fyrir börn og allt að þrjú ár fyrir full­orðna.“

Þá nefnir einn að al­mennings­sam­göngur gætu verið betri. Einn, sem kveðst vera Banda­ríkja­maður, segist einu sinni hafa notað Strætó og það ætli hann ekki að gera aftur.

Þá nefnir einn Ís­lendingur, sem kveðst vera bú­settur í Ástralíu, nokkur at­riði sem hann saknar ekki frá Ís­landi. Við­komandi nefnir til dæmis að hér á landi telst það dyggð að vinna mjög mikið. „Að vinna í 50 til 60 tíma á viku var bara normið í sjö ár. Jú, launin voru ágæt en ekki þess virði. Ég hef ekki unnið einn yfir­vinnu­tíma síðustu tvö ár og ég er alveg jafn vel staddur fjár­hags­lega,“ segir Ís­lendingurinn sem vinnur í heil­brigðis­geiranum.

Hann nefnir einnig leigu­markaðinn og bendir á að árunum 2014-2016 hafi fólk bók­staf­lega þurft að slást um lausar eignir.

Þá kemur það ef­laust ekki mörgum á ó­vart að gjald­miðillinn okkar er nefndur til sögunnar. Krónan sé of ó­stöðug og það sé ó­þægi­legt að hafa gjald­miðil sem getur sveiflast eins og lauf í vindi gagn­vart öðrum gjald­miðlum á stuttum tíma.

Hér má kynna sér um­ræðuna betur.