Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, byrjaði skemmtilegan þráð á Twitter í gær sem vakið hefur nokkra athygli. Um er að ræða skemmtilegan leik þar sem íslenskir Twitter-notendur eru hvattir til að lýsa því hvenær sumarið er raunverulega komið.
Líf reið á vaðið og sagði einfaldlega:
„Sumarið er komið þegar: Malbikunarstrákarnir fara úr að ofan. Nú þið.“
Fjölmargir hafa tekið þátt og útkoman er stórskemmtileg og eflaust margir sem geta tengt við það sem fram hefur komið.
Einn segir til dæmis að sumarið sé komið þegar Ísfirðingar byrja að kalla fjörðinn sinn Ibizafjörð og annar þegar Siglfirðingar fara að kalla bæinn sinn Costa del Sigló.
Hér að neðan má svo sjá nokkur skemmtileg innlegg:
„Þegar það kemur frétt um að unglingar hafi kveikt í sinu.“
„Þegar fólk fer að kvarta yfir því á samfélagsmiðlum hvað einhver tertusneið kostaði á einhverju kaffihúsi út á landi.“
„Þegar Rúv gerir frétt um kal í túnum.“
„Þegar forsíða Morgunblaðsins er mynd af troðnum steinapotti í Laugardalslaug.“
„Þegar nagladekkjarifrildið hefst.“
„Þegar fólk notar orðin Sólarsamba og Bongóblíða í annarri hverri setningu.“
„Þegar ég sofna eftir miðnætti og vakna hálf fimm af því það er ALLTAF bjart.“
„Þegar maður finnur lyktina af ný-slegnu grasi. My oh my.“