Mörgum Íslendingum þykir það sennilega ganga helst til hægt að bólusetja þjóðina gegn kórónuveirunni. Íslendingar geta þó lítið kvartað enda hefur ekki einn einasti skammtur af bóluefni verið gefinn í 130 löndum heimsins.
NPR fjallar um þetta og vísar í samantekt Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF. Samkvæmt tölum UNICEF búa 2,5 milljarðar manna í löndum þar sem bólusetningar eru ekki einu farnar af stað.
Eðli málsins samkvæmt er eftirspurnin eftir bóluefni miklu meiri en framboðið og þá eru ríkari þjóðir heimsins í sterkari stöðu en þær fátæku.
Í nýlegri umfjöllun Washington Post kemur fram að lyfjaframleiðandinn Moderna hafi ráðstafað megninu af sínu bóluefni til ríkustu þjóðanna og önnur fyrirtæki fari sömu leið.
Bent er á það að ríkisstjórn Joe Biden Bandaríkjaforseta hafi tilkynnt fyrir helgi að Bandaríkjamenn hefðu tryggt sér 200 milljónir skammta til viðbótar á næstu mánuðum.
Samkvæmt gögnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar er útlit fyrir að fátækustu löndin muni áfram þurfa að búa við skort á bóluefni. Þannig megi alveg gera ráð fyrir því að þessar þjóðir fái ekki bóluefni fyrr en síðla árs 2022 eða jafnvel árið 2023.