Íslendingar búa yfir einni verstu matarmenningu heims – Ísland í 91. sæti af 95 þjóðum

Ef marka má niðurstöður könnunar sem birtast á vefsíðunni TastaAtlas búa Íslendingar yfir einni verstu matarmenningu heims. Ísland er í 91. sæti af 95 þjóðum en það er kannski huggun harmi gegn að frændur vorir, Norðmenn, eru enn neðar og skipa neðsta og síðasta sætið.

Morgunblaðið gerir málið að umtalsefni í dag.

Í fréttinni kemur fram að 140 þúsund notendur síðunnar hafi kosið yfir 16.000 rétti víðs vegar að úr heiminum og gefið þeim einkunn. Þegar allt er tekið saman er Ísland í 91. sæti, en listinn tekur til þess besta og versta sem er í boði.

Það kemur kannski ekki á óvart að Ítalir eru í efsta sæti og þar á eftir koma til dæmis Grikkland, Spánn, Japan, Indland og Mexíkó. Danir eru í 35. sæti, Svíar í 62. sæti og Finnar í 72. sæti.

Tekið er fram í frétt Morgunblaðsins að könnunin nái til hversdagsmatar en ekki til dæmis íslenskra veitingastaða. Hákarlinn þykir verstur, þar á eftir þorramatur og hrogn en bestu réttirnir þykja kjötsúpa, skyr og rúgbrauð til dæmis.

Nánar um könnunina í Morgunblaðinu í dag.