Orð sendiherra Rússlands hér á landi í fjölmiðlum í gær hafa vakið talsverða athygli.
Sendiherrann, Mikhail V. Noskov, sagði Rússa ekki óttast refsiaðgerðir erlendra ríkja og sagði raunar að ekki væri um að ræða innrás á yfirráðasvæði Úkraínu. Um væri að ræða aðgerð til að tryggja öryggi rússneskra borgara – eins einkennilega og það hljómar.
Rússar réðust inn í Úkraínu í gær og í morgun var greint frá því að herinn væri kominn í Kænugarð. Dauðsföll í gær voru hátt í 200 talsins og héldu margir íbúar Kænugarðs til í neðanjarðarlestarstöðvum í nótt.
Hér að neðan má sjá brot af ummælum Íslendinga á Twitter um rússneska sendiherrann.
Sendiherra Rússlands er fyrsta manneskjan sem mér hefur á æfinni fundist að eigi að sækja kl 6 í fyrramálið og vísa úr landi í lögreglufylgd.
— Thorvaldur Sverrisson (@Valdikaldi) February 24, 2022
Samúð samkend kærleikur það er verið að drepa fólk eins og þig og mig við bæjar dyrnar hjá okkur í nokkra klukkutíma fjarlægð sendiherra rúslands segir þetta sé ekki innrás með blóðuga vitund og rándýrs hvítar tennur
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) February 24, 2022
Eftir yfirlýsingar sendiherra Rússlands í gær er það nokkuð skýrt að hann hefur engin tengsl við gildi Íslands. Sendum hann heim til sín.
— Arnaldur Sigurðarson (@Arnaldtor) February 25, 2022
Öll ljúga; fuck vesæla djöfuls Nató, fuck vesalinginnPútín og fuck litla geldinginn sem er sendiherra Rússa hér. Þvílíkt hyski, allt aumkunarvert.
— Kött Grá Pje (@KottGraPje) February 24, 2022
Afhverju vísum við ekki sendiherra Rússlands út úr landinu?
— Siggeir M Hafsteinsson (@mrsigvicious) February 25, 2022
Að því sögðu má henda þessum sendiherra upp í vél og beint til Rússlands með hann. @katrinjak https://t.co/oEz3Gyjet1
— 𝚁 𝙰 𝙶 𝙶 𝙰 🦋 🇺🇦 (@raggaj89) February 24, 2022
sjaldan séð eins vandræðalegan mann í TV eins og sendiherra Rússlands
— Thora Leosdottir (@thoraleos) February 24, 2022
Sendiherra Rússlands á Íslandi OUT
— Johann (@johannsson69) February 24, 2022
Hvernig væri að segja sendiherra Rússa að drulla sér heim? #Ukraine
— Unnar þór (@Unnarth) February 24, 2022